Fara beint í efni
Ástund 50 ára 1976–2026 Gæði, reynsla og ástundun í hálfa öld

Karfa

Karfan er tóm

Algengar spurningar

Hér eru svör við því sem við erum oftast spurð að. Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu á info@astund.is eða hringdu í síma 568-4240.

Pantanir og greiðslur

Hvernig get ég greitt?

Greitt er með þeim greiðsluleiðum sem birtast í greiðsluferlinu, meðal annars með greiðslukorti. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt og við geymum ekki kortaupplýsingar.

Hvenær er pöntunin mín staðfest?

Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur farið fram og þú hefur fengið staðfestingu í tölvupósti. Í staðfestingunni er kvittun með sundurliðun og virðisaukaskatti.

Eru verð með virðisaukaskatti?

Já, öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti.

Hversu lengi gilda gjafabréf?

Gjafabréf gilda í fjögur ár frá útgáfudegi, nema annað sé tekið fram. Ef kaupverð er hærra en inneignin má greiða mismuninn með öðrum greiðslumáta.

Sendingar og afhending

Get ég sótt pöntunina í verslunina?

Já. Þú velur að sækja í greiðsluferlinu og sækir pöntunina í verslun okkar á Lynghálsi 3, 110 Reykjavík.

Hvað kostar að fá vöruna senda?

Sendingarkostnaður kemur fram í greiðsluferlinu áður en þú staðfestir pöntunina. Nánar í sendingarskilmálum.

Hvenær er verslunin opin?

Mánudaga til fimmtudaga kl. 10–18, föstudaga kl. 10–17 og laugardaga kl. 10–14. Lokað á sunnudögum.

Skil og skipti

Get ég skilað vöru?

Já, þú hefur 14 daga frá því að þú tekur við vörunni til að skila henni. Varan þarf að vera óskemmd og ónotuð, í upprunalegum umbúðum eftir því sem við á, og kvittun eða pöntunarstaðfesting þarf að fylgja. Nánar í skilaskilmálum.

Get ég skipt í aðra stærð eða lit?

Já, sömu skilyrði gilda um skipti og skil. Þú getur skipt í versluninni á Lynghálsi 3 eða sent vöruna til okkar.

Hver greiðir sendingarkostnað við skil?

Þú greiðir flutningskostnað þegar þú sendir vöru til baka. Ef varan er gölluð gilda reglur laga um neytendakaup.

Hvað ef varan er gölluð?

Hafðu samband á info@astund.is eins fljótt og hægt er, með pöntunarnúmeri, lýsingu á gallanum og myndum ef hægt er. Almennur kvörtunarfrestur vegna galla er tvö ár frá afhendingu.

Er hægt að skila sérpöntuðum vörum?

Skilaréttur gildir ekki um vörur sem eru sérpantaðar eða útbúnar samkvæmt óskum viðskiptavinar, né um innsiglaðar vörur ef innsiglið hefur verið rofið af heilsuverndar- eða hreinlætisástæðum.

Persónuvernd

Hvernig farið þið með persónuupplýsingarnar mínar?

Við notum upplýsingarnar til að afgreiða pantanir og veita þjónustu. Nánar í persónuverndarstefnu okkar.