Fara beint í efni
Ástund 50 ára 1976–2026 Gæði, reynsla og ástundun í hálfa öld

Karfa

Karfan er tóm

Belcando Finest Light

Tilboðsverð5,799 kr

  • Spurningar um vöruna? Fáðu ráðgjöf í verslun eða síma.
  • Verslun á Lyngháls 3, 110 Reykjavík
  • Fjölskyldufyrirtæki frá 1976

Bragðgott fóður fyrir rólegri daga

BELCANDO Finest Light er þurrfóður fyrir fullorðna hunda af litlum og meðalstórum tegundum sem hreyfa sig lítið eða þurfa að huga að holdafari. Það hentar einnig eldri smáhundum sem eru farnir að hægja á sér.

Ferskt kjúklingakjöt, andaprótein og lifur gefa fóðrinu girnilegt bragð. Hrísgrjón og hafrar bætast við ásamt chiafræjum, og hóflegt fituinnihald ásamt trefjum gerir það að góðum valkosti þegar fylgjast þarf með þyngd.

Helstu eiginleikar

  • 19,5% prótein og 9% fita.
  • Með 30% fersku kjúklingakjöti og 1,5% chiafræjum.
  • Með önd og lifur fyrir bragðið.
  • Án hveitis, maíss, soja og mjólkurafurða.
  • Inniheldur hafra og hrísgrjón og er því ekki kornlaust.

Meira bragð með volgu vatni

Finest Light má gefa þurrt eða væta með volgu vatni. Við vætingu myndast bragðgóð sósa sem getur gert matartímann meira spennandi fyrir matvanda hunda.

Fóðrun

Fylgdu fóðrunarleiðbeiningum á umbúðum og aðlagaðu dagskammtinn að kjörþyngd, aldri og hreyfingu hundsins. Þegar skipt er um fóður er gott að blanda því nýja smám saman við fyrra fóður. Tryggðu alltaf aðgang að fersku drykkjarvatni.

Stærð: 4 kg poki. Mynd sýnir fleiri en eina pakkningastærð.

Belcando Finest Light
Belcando Finest Light Tilboðsverð5,799 kr