Hnokki 18kg

5.499 kr

Varan fæst sótt á Lynghálsi 3, ekki er hægt að fá hana senda.
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband í síma 568-4240 eða á info@astund.is

Hnokki hestafóður.

Hnokki eru þandir, orkuríkir hestakögglar með háu fituinnihaldi en próteinsnauðir. Hnokki er frábær fóðurbætir fyrir orkufrek hross í mikilli þjálfun, eða hross sem þurfa að auka hold.

Fitfóðrun hrossa hefur jákvæð áhrif á efnaskiptasvörun, sem getur leitt til lægri mjólkursýru í vöðvum við þjálfun.

1kg/dag með heyi ætti að fullnægja þörfum hestsins fyrir öllum vítamínum og steinefnum. Kögglarnir eru E-vitamín og bíótínríkir. Hentugt bíotín innihald eykur hóf- og hárvöxt til muna. Þeir eru ryklausir og mjög lystugir.

Description

Ráðlagður dagskammtur:
0,5-1 kg/dag fyrir hross í mikilli þjálfun
1-2 kg/dag fyrir hrossa sem þarf að þyngja og auka hold.